|
Eftir heimsókn í Skólaþingið getur verið skemmtilegt að nota tímann til að læra enn meira um Alþingi, ríkisstjórnina og þingflokkana. Á vefsíðunni www.althingi.is er að finna fullt af upplýsingum um þetta, en það getur líka verið gaman að fara á aðrar heimasíður. Tekin hafa verið saman vefföng á nokkrar aðrar vefsíður hér fyrir neðan.
Á vef Alþingis er að finna lagasafn, þingmál og ræður, upplýsingar um þingmenn, um sögu Alþingis, hlutverk þess og starfshætti.
Þegar þingfundur stendur kemur dagskrá hans á forsíðu vefsins. Á forsíðunni birtast líka ný þingskjöl og ný lög. Sé tengillinn þingmál valinn á forsíðu er boðið upp á að leita að þingmálum frá fyrri þingum.
Hægt er að skoða feril hvers þingmáls í þinginu, sjá allar ræður í málinu, nefndarálit og breytingartillögur, allar atkvæðagreiðslur og afgreiðslu mála.
Þegar frumvarp til laga er lagt fram eru aftast í skjalinu athugasemdir/greinargerð þar sem tilgangurinn með frumvarpinu er skýrður.
Ungliðahreyfingar stjórnmálaflokka:
Samband ungra
framsóknarmanna
Ung vinstri græn
Ungir jafnaðarmenn
Ungir sjálfstæðismenn
Stjórnmálaflokkar sem eiga fulltrúa á Alþingi:
Framsóknarflokkurinn
Hreyfingin
Samfylkingin
Sjálfstæðisflokkurinn
Vinstri grænir
Ýmsir
áhugaverðir tenglar:
Kosning
Réttindi ungs fólks
á vinnumarkaði
Ríkisendurskoðun
Ríkisstjórn Íslands
Umboðsmaður Alþingis
Ungmennavefur, fræðslu- og upplýsingaefni um Alþingi
Þingvellir
Þjóðskrá
|