Skólaþingið er kennsluver Alþingis fyrir 8.–10. bekki grunnskólans þar sem lögð er mikil áhersla á virkni allra þátttakenda. Með Skólaþingi er leitast við að efla skilning og þekkingu nemenda á stjórnskipulagi okkar, störfum Alþingis og lýðræðislegum vinnubrögðum. Til að gera leikinn sem áhugaverðastan er beitt tölvutækni og margmiðlun til að miðla upplýsingum og stýra leiknum. Miðað er við að einn bekkur taki þátt í leiknum í einu.
Til að hægt sé að leika leikinn verða minnst 12 nemendur að taka þátt og
í mesta lagi 32. Heimsókn í Skólaþingið er skólum að kostnaðarlausu.