Skólaþing logo Skólaþing skraut
top

um skólaþing

Heimsókn í skólaþing

Fyrir Heimsókn

Eftir Heimsókn

English

um skólaþing

Þingflokksfundur Á fyrsta þingflokksfundi er rætt um þrjú ný þingmál sem eru til meðferðar á Skólaþingi.
Þingfundur Á fyrsta þingfundi er mælt fyrir málunum þremur (1. umræða). Síðan er þeim vísað til 2. umræðu og nefndar.
Nefndarfundur Á nefndarfundi eru málin rædd, leitað álits hjá sérfræðingum og hagsmunaaðilum og ákveðið hvort nauðsynlegt sé að gera breytingar á málunum. Nefndirnar skila nefndarálitum.
Þingflokksfundur Á öðrum þingflokksfundi kynna nefndarmenn niðurstöður nefndanna fyrir samflokksmönnum.
Hlé Hléið er hægt að nota til að reyna að ná samkomulagi við aðra þingmenn/flokka. Boðið er upp á veitingar.
Þingfundur Á öðrum þingfundi er mælt fyrir nefndarálitum og breytingartillögum (2. umræða). Málin og breytingartillögur eru borin undir atkvæði og vísað til 3. umræðu.
Þingflokksfundur Á þriðja þingflokksfundi berast óvænt tíðindi. Þingmenn hafa tækifæri til að endurskoða afstöðu sína.
Þingfundur Á þriðja þingfundi fer fram umræða og atkvæðagreiðsla um málin (3. umræða). Við eitt málanna er flutt breytingartillaga og/eða tillaga til rökstuddrar dagskrár. Greidd eru atkvæði um tillögurnar og um málin í heild og þau afgreidd sem lög frá Skólaþingi eða felld.




bottom,

Alþingi - 150 Reykjavík - sími 5630500 - skolathing@skolathing.is